Þú - gerðir gæfumuninn
Þú - gerðir gæfumuninn
Stundum segja fá orð meira en mörg. „Þú gerðir gæfumuninn“ er hlý og persónuleg leið til að þakka þeim sem hafði áhrif, trúði á þig eða hjálpaði þér áfram á lífsleiðinni.
Kertið er handgert úr endurnýttu kertavaxi og glerið er botninn úr kampavínsflösku sem hefur verið vandlega skorin og slípuð til að mynda mjúkar, fallegar línur.
Hægt er að sækja kertið á Seltjarnarnesi eða fá það sent með Dropp. Veljir þú að sækja, berast nánari upplýsingar um afhendingu um leið og kertið er tilbúið.
Glerin eru í fallegum grænum eða brúnum tónum og, rétt eins og á glæsilegustu kampavínsflöskum, er botninn kúptur. Miðinn er hvítur með gylltum stöfum. Kertið er með mildum vanilluilmi.

Vöruflokkar
-
Tækifæriskerti
Falleg kerti fyrir heimilið og einstök gjöf við hin ýmsu tilefni.
-
Persónuleg kerti
Persónulegu kertin eru einstök gjöf við hin ýmsu tilefni. Nafn þess sem...
-
Fyrir heimilið
Hér finnur þú fylgihluti eins og USB-kertakveikjara, heimilisilm, kertaáhöld og kort með...